Íris bloggar

Bullið mitt

02.04.2010 23:33:09 / irisg

Föstudagurinn langi

Jæja þá eru að koma en einir páskarnir :)
Þetta verður flott frí fyrir þá sem en eru í vinnu og náttla skólakrakkana :)

Héðan frá Selfossi er bara allt ágætt að frétta,Hjalli er á fullu í skúrnum að gera hjólið sitt klárt fyrir sumarið :) Mitt er næstum tilbúið,en hvað ég hjóla mikið á því í sumar er annað mál,ég held að ég sé orðin of gömul fyrir racer hehe spurning um að fá sér bara hippa eða ferðahjól með tösku að framan fyrir Penný,þó svo að ég sé nú ekkert alltof spennt fyrir því að hafa hana á mótorhjólinu :$
 Kanski verður þetta bara þannig að ég Penný ásamt Þ.K verðum bara bílandi á eftir Hjalla í sumar :) Því Þ.K neitar að fara aftan á racerinn hans Hjalla :) enda er hún öll komin í grasmótorinn sem ég reyndar skil ekki hehe en það er bara ég.

Við erum búin að hafa það gott hér í hólunum það sem af er af páskunum,en svo á morgunn er stefnan að fara í bæinn í afmæli til Finns Arnars hennar Guffu vinkonu og svo partý um kveldið :)Svo á páskadagsmorgunn verður bara borðaður morgunmatur,svo leit að páskaeggjum og svo slappað af fyrir framan imban,eggið étið og horft á einhverja góða mynd í þynnkunni :)Svo byrjar alvaran eftir helgina,því nú á að fara að taka á því og vonandi verður styrkur enþá opinn,því hún Sæunn vinkona mín ætlar að sparka í rassinn á mér og hjálpa mér að koma mér í form :)
Jæja,er hætt í bili :)
Sssssssssseeeeeeeeeeeejjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjaaaaaaaaaaaaaaaaaaa

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.01.2010 13:22:18 / irisg

Langt síðan síðast

Vá hvað það er langt síðan maður hefur bloggað einhvað,þetta facebook dæmi tekur allan tíman frá manni :)
Núna þegar það er komið en eitt nýtt árið þá væri kanski ágætt að rifja það upp hvað stóð upp úr frá árinu 2009 :)
fyrst var það afmælið okkar syss sem tókst mjög vel :) Við fengum fullt af góðum gestum til okkar

En það sem stendur mest upp úr er þegar við fengum litlu stelpuna okkar hana Penný :) Þvílíkur gullmoli sem ein tík getur verið :) Ég dáist af henni á hverjum degi,hún er svo mikill snúlla þessi elska :)

Svo seldi ég Yarisinn minn sem ég hélt að ég myndi aldrey gera 8| og fékk mér Lancer station,og afsökunin fyrir svona stórri stækkun á bifreið var sú að það var að koma nýr fjölskyldu meðlimur :haha::haha: eitt stk smáhundur :d

Að lokum eru það náttla allar hjólaferðirnar og sprautuninn á Hondunni :) ég er mjög sátt yfir því að hafa farið alla þessa km s.l sumar því ég er ekki viss um að ég hjóli mikið næsta sumar. Ég á litla dömu sem ég tími ekki að fara lengi í burtu frá og ég er sko mikið sátt við það :d Þannig að Hjalli verður bara að hjóla fyrir okkur bæði :)

Jæja nú er ég hætt,ætla að setja inn nokkrar myndir af fallegustu stelpunni minni :)
SSSSSSSSeeeeeeeeeeeeeeejjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa.

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.11.2009 00:02:52 / irisg

Smá fróðleikur fyrir hunda eigendur,ég reyndar hafði ekki hugmynd um þetta

EKKI GEFA HUNDINUM ÞETTA!!!

Eins og við flest vitum er sumt alls ekki gott fyrir bestu vini okkar. Því ákvað ég að skella hérna inn lista yfir það semhundar mega EKKI borða.

Heimildir fengnar af hvuttar.net

Áfengir drikkir: Döö. Sjálfsagt finnst einhverjum það voða sniðugt að gefa hundinum vín en áfengi getur valdið dái og jafnvel dauða útaf efninu etanól, sérstaklega í mikklu magni.

Barnamatur:  Er samt ekki hættulegur börnum! En barnamatur getur innihaldið lauk sem er eitraður hundum.

Fiskibein, fuglabein, og aðrar slíkar afurðir: getur valdið fyrirstöðu eða rifið inniflin innan frá. Þar hafið þið það! (sumir telja reyndar að ósoðin bein séu betri en þá er náttúrulega hætta á salmonnellu frá kjúklingnum).

Kattarmatur: Já passið að hundurinn komist ekki í hann því kattamatur er of ríkur af próteinum og fitu.

Súkkulaði, kaffibaunir og annað sem inniheldur koffein eða kakó: Það vita flestir að ekki er æskilegt að gefa hundum súkkulaði og hér er ástæðan. Súkkulaði inniheldur koffein og efnið Theobromine sem er eitrað hundum.

Súraldinssafi: Oó, og Gola sem er vitlaus í hann. En hann getur valdið óeðlilega mikklum uppköstum.

Vínber og rúsínur: Inniheldur óþekkt efni sem er eitrað hundinum og getur skaðað nýrun varanlega.

Vítamín ætluð mönnum sem innihalda járn: Eitur! Getur valdið eiðileggingu í melltingarfærum og öðrum líffærum.

Mikið magn af lifur: Og það er alltaf veið að benda manni á hana:os  En mikið magn af henni getur valdið A-vítamín eitrun sem hefur áhrif á vöðava og bein.

Sumar hnetur: Eitur! Getur haft áhrif á meltingarkerfið, taugakerfið og vöðva.

Avókadó: Þessi ávöktur inniheldur efnið persin sem er eitrað hundum. Vökvi safnast fyrir í líkamanum sem verður óvenju mikil, auk bólgna í kviðarholi.

Mjólkurvörur: Þær eru ekki tórhættulegar en margir hundar, og kettir líka, hafa ekki nægt magn af ensím til að brjóta niður mjólkursykurinn. Þetta getur valdið niðurgangi.

Myglaður og skemdur matur: Getur innhaldið eitur. Þá vitið þið það.

Sveppir(gorkúlur): innihalda eitur sem hefur áhrif á heila og mænusigg, getur valdið losta sem getur leitt til dauða.

Laukur og hvítlaukur: Hvort sem hann sé hrár, eldaður eða krydd getur hann orsakað sjemdir á rauðublóðkornum og blóðleysist sem dregur til dauða. Orsökin er efnið sulfoxides og disulfides, sem hundar geta ekki melt vegna ensíms leysis.

Döðluplóma/Persimónía: Fræin geta valdið teppu og garnabólgum

Plómur, Ferskjur, Epli og Apríkósur: inniheldur efni sem hundurinn þolir ekki og getur leitt til köfnunar.

Hrá egg: Fyrir utan salmonnelu innihalda egg ensim sem hefur áhrif á húð og feld.

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.11.2009 22:10:38 / irisg

Mánudagur

Jæja það er komið ansi langt síðan ég bloggaði síðast :)
það er allt fínt að frétta héðan,dagarnir fljúga frá manni og Penný mín yndilslega stækkar bara og stækkar og mér þykir vænna um hana með hverjum deginum sem líður,hún er manni bara eins og lítið barn og Hjalli brosir oft af því hvað ég passa hana vel :) En hún er jú litla daman mín :)
Verst þykir mér að myndavélin mín er ónýt annars væri ég í því að taka myndir af henni :):)

Hvað er annað að frétta ? Jú,við erum búin að skipta um bíl :) erum komin á Lancer station í stað fyrir Yaris,ekki veitir af fyrst við vorum að stækka familíuna :) Og svo erum við flutt en einu sinni :) Núna búum við í sveitinni :) mér til mikillrar gleði og Pennýjar því hér er yndislegt að vera og frábærir nágrannar :)

J'OL
Við erum að verða búin að kaupa allar jólagjafirnar :) sem er flott því það er nóg eftir sem þarf að versla því þetta verða öðruvísi jól fyrir mig allavegana því núna verðum við með báða krakkana :) Þórunn Klara kemur í jólafríinu og Gunni kemur svo í mat á aðfangadag svo fara þau bæði börnin til mömmu sinnar og við Hjalli gerum vonandi einhvað sniðugt :) Kemur í ljós þegar líða fer að jólum :)

Jæja nenni ekki að blogga meira,held að Ísland sé að fara til anskotans
Sssseeeeeeeeeeeejjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.10.2009 11:51:35 / irisg

Jæja

Þá er maður búin að koma sér nokkurnvegin fyrir hér í sveitinni :) Við erum búin að vera hér núna í rúma viku og búin að ganga frá eiginlega ðllu dótinu,búin að mála eitt stk herbergi og þrífa alla íbúðina hátt og lágt :) Ég var að enda við að bóna baðherbergis gólfið,dugnaðurinn er alveg hreint að fara með mig þessa dagana hehehehe.

Við Hjalli tókum upp úr tösku sem var full af gallabuxum sem voru löngu orðnar alltof þröngar á okkur og við prufuðum að máta þær aftur og valla þær passa :) :) Þannig að aðhaldið hjá okkur er greinilega að virka vel :) Núna er stefnan sett á en meira aðhald þannig að þessar tilteknu buxur verði of víðar á okkur :) En það kemur bara í rólegheitunum eins og þessi kíló sem farin eru :):)

Ég veit nú ekki alveg hvað ég á að bulla hér meira nema okkur líðu mjðg vel í sveitinni og líka litla krúttinu okkar,henni Penný :) Hún stækkar mikið og fitnar líka svo nú held ég að það sé komin tími á að venja hana við ól og spotta og fara með hana út að labba :)

Jæja,kallin er að kalla á mig að koma að borða,best að fara að fá sér gróft brauð með kotasælu og grænmeti namm það er mjðg gott - prufaðu það bara ;)

Seeeeeeeeeejjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.09.2009 13:03:10 / irisg

Flutningar og fleira framundan :)

Jæja þá rætist langþráður draumur hjá mér um næstu mánaðarmót,við erum s.s að fara að flytja í sveit :) Reyndar bara 4 km fyrir utan Selfoss á bæ sem heitir Glóra,þar getum við verið með hana Penný okkar og ég er viss um að hún Þórunn Klara á eftir að fíla sig vel þarna,fullt af hestum og fleira skemmtilegt sem hún getur gert :)
Ég er loksins búin að selja litla gullmolan minn (Yaris)Ég skipti á honum og Lancer station :) Þannig að núna ætti að vera meira pláss fyrir okkur öll.

Við Hjalli fórum á Ljósanótt í gær,það var mjög gaman fyrir utan rigningu í Kefló og eina þá skrítnustu hópkeyrslu sem ég hef á æfinni farið í 8| keðjan var sundurslitinn og meðalhraðinn var c.a 100,furðuleg hópkeyrsla þar.
En að öðru leyti tókst þetta mjög vel,og Ernir eiga nú bara hrós skilið fyrir :)

En að allt öðru,ég er alltaf að furða mig á því hvað fólk getur verið bilað,ég meina þú segir "vinkonu" þinni einhvað og það er búið að tilkynna þér að það sem þú segir á hennar heimili sé bara þar og leki ekkert út en svo ertu varla farin af heimilinu þá er búið að leka því út um allt.Þetta kalla ég skrýtna vini,og ég hef ákveðið að forðast svona fólk.:klikk::^):evil::$
Jæja það eru komnir gestir svo ég ætla að hætta núna
SSSSSSSSeeeeeeeeeeeeeeeejjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.08.2009 10:27:13 / irisg

Lífið er breytingum háð :)

Já það má eiginlega segja það að þessi setning eigi við okkur hér,þessa dagana.
En nú hefur verið tekin ákvörðun um að selja bílinn,selja Súkkuna og kaupa hund og kanski annan bíl hehe :)

Ég sem ætlaði aldrey að fá mér hund aftur,féll fyrir litlum 2ja vikna hvolpi sem var settur í fangið á mér og nú er ekki aftur snúið 8| Við erum s.s að fara að kaupa Silki Terrier hvolp sem er tík af vinafólki okkar og þau fá Súkkuna í staðinn,þetta er ágætt skipti held ég þar sem það þarf að henda c.a 100 - 150 kall í hjólið til þess að gera hana flotta og ég losna við tuðið í kallinum,en hann er búin að vera að væla um hund síðan hún Perla mín var látin fara,svo núna kemur meira pláss í skúrinn og kallinn hættir að tuða íhaa :d

En bílinn ætlum við að selja vegna aldurs,hann er búin að þjóna mér ansi vel og á ég eftir að sakna litlu gulu jógúrtsdósarinnar eins og minn mágur kallar minn eðalbíl hehe :)

Bæði bílinn og hjólið eru einhvað búin að vera á móti mér þessa dagana því þau dóu bæði 8| fyrst dó bílinn,en hann fer nú að komastí lag,enda mín sök að hann dó og svo ´dó Hondan,en hún er greinilega búin að fá nó af því að hafa verið kölluð Honda Mix og þurfa að standa undir nafni því hún stoppaði á sunnudag og neitaði að keyra með mig lengra nema að ég tæki YAMMA bensíndæluna úr sér og setti Hondu dælu í,þá var allt í góðu og hún rauk í gang aftur hehe,svo er fólk að segja að farartækin séu ekki með sál :d8):lol:þvílíkt bull :)

Við fórum í fertugs afmæli s.l laugardag til hennar Lenu minnar á bakkanum,þar var mikið fjör og mikið gaman,við skriðum hér heim held ég um fjögur leytið um nóttina og mín svaf til klukkan 4 á sunnudag 8| þvílík bilun að sofa svona lengi,enda er ég enþá að berjast við að snúa sólarhringnum aftur við :)

Eg einhver veit um station bíl sem er til í að skipta á eðal Yaris,þá endilega látið mig vita :) .
Jæja ég er hætt í bili. SSSSSSSSSeeeeeeeeeeeeeejjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjaaaaaaaaaaaaaaaaa

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.08.2009 22:29:00 / irisg

Jamm og jæja :)

Á maður nú ekki að bulla einhvað hérna,það líður svo langt á milli sem ég blogga að ég var næstum búin að gleyma lykilorðinu inn á síðuna,nema að það sé aldurinn hehe :haha:
Við fórum í matarboð til Gunnu vinkonu s.l laugardag,hún bauð uppá heilgrillað lamb með öllu tilheyrandi og að sjálfsögðu bjór með :) Þórunn Klara og Sigurjón fengu bara Pepsí :) Svo röltum við okkur niður í bæ og þar var brenna og brekkusöngur með Árna Jhonsen OMG hehe:haha. Og þar sátum við til klukkan hálf tólf,svo hittum við Idda vin okkar og fórum með honum að heimsækja eðalfólkið Rikka og Sæunni mína :) Sátum þar til klukkan hálf fjögur um nótt og drukkum Amarrúllu,Viský og Koníak :)
Hjalla var boðin innganga í Ontar á Selfossi :) Þannig að nú er hann komin í bakmerkjaklúpp kallinn :)
Það var fínt að hafa Þórunni Klöru með svona aðeins til að strappa mann niður í drykkjunni hehe,sant var maður nú frekar þunnur á Sunnudeginum,Púff við skulum ekkert ræða það neitt meir hehehehehehe.

Í kvöld var svo Ontar fundur hér á bæ í tilefni að innlimun Hjalla,og ég s.s stóð á haus í allan dag að baka og þrífa og er bara nokkuð ánægð með árangurinn því hingað mættu Níu hjól í kaffi :)Þetta var alveg frábært kvöld :)

Ég stal mynd af Ontar síðunni sem ég ætla að setja inn og svo eins og venjulega SSssssseeeeeeeejjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa.

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.07.2009 15:57:29 / irisg

Veðrið er eins og skapið hjá manni :)

það er alveg staðreynd að veðrið er eins og skapið hjá mann :)

Ég er ekki búin að hreyfa við hjólinu mínu eftir að ég kom heim úr svaðilförinni miklu en svo hljóp einhvað í mig í gær um kvöldmatarleitið :) Guffa og familía komu og borðuðu með okkur fisk,svo þegar þau voru að fara þá alltíeinu langaði mér svo að fara út að hjóla,svo við hjónaleysin ákváðum að drífa okkur. ´Byrjuðum á því að renna niður á Eyrarbakka og þar á leiðinni fékk ég gjörsamlega útrás á Hondunni og keyrði hana lá við eins hratt og hún komst á bakkan. Mætti þar svo hjá Lenu og Dóra með stórt bros á andlitinu :haha:( Ég og Hondan erum s.s orðnar vinkonur aftur og hún verður ekki seld,allavegana ekki í bráð.)
Svo hjóluðum við með hjónunum frá bakkanum Gaulverjarbæjar hringinn,svo var kaffistopp á Olís Arnbergi,og Verslunarmannahelgin planlögð,að vísu bara lauslega :)
Við fjögur ætlum að fara á Flúðir líklegast á laugardagsmorgunn,og vera þar einhvað frameftir.það kemur svo bara í ljós. Við vorum allavegana öll fjögur sammála um það að gista ekki í tjaldi,enda er ég hætt því,það er bara einhvað fyrir unglingana :)

Núna er líka þetta fína veður,klukkan orðin 4 og ég enþá á náttfötunum og búin að hanga í tölvunni síðan um 11 leytið í morgunn,maður er ekki í lagi :$ Ég er ekki alveg að fatta hvað er í gangi með mig þessa dagana.Er hressust á kvöldin og þá er ég til í að fara einhvert út að hjóla :$8|:!:

Jæja,nenni ekki meira í bili. Sssssssseeeeeeeeeeeejjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjaaaaaaaaaaaaaaaaa


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.07.2009 11:09:17 / irisg

Komin heim

Mikið var nú gott að koma heim og leggjast upp í sitt eigið rúm eftir heitt og gott bað á Sunnudaginn :)
Við fórum s.s á ætarmót á Reykjanes (best að hafa þetta rétt fyrir Perlu hehe) við Ísafjarðardjúp. Við lögðum íann s.l miðvikudag,stoppuðum í Borganesi og fengum okkur að borða og tönkuðum,ég hitti þar lögregluþjón og spurði hann hvort væri betra að fara Búðardalsmeginn eða upp hjá Staðarskála. Hann sagði Staðarskála svo við héldum áfram þá leið.Stoppuðum þar aftur og tönkuðum svo byrjaði æfintýrið OMG þvílík færð maður minn. First var þetta líka fína malbik,svo kom gamall vegur sem var bara fínn og við héldum ferðinni á svona c.a 120 en svo allt í einu og án viðvara urðum við að klossbremsa því við vorum allt í einu komin inn á þvílíkar vegaframkvæmdir sem bætheway voru ekkert merktar og ég get svo svarið það að yfir þetta ógeð fer ég ekki aftur á minni Hondu,það er á hreinu. :klikk: Ég veit ekki hvað ég á að kalla þetta því þarna var ´bókstaflega búið að hræra malbiki og grjóti saman í einn pakka og maður komst yfir þetta á 20 - 30 km hraða með lappirnar út í loftið og á þrjóskunni einni saman. Við vorum bæði frekar pisst þegar yfir var komið og mitt músarhjarta sló á þreföldum hraða 8| Svo þegar við vorum að komast yfir þetta þá sá ég skildi sem á stóð MALBIK ENDAR ,var þetta djók hjá vegagerðinni eða ??????' ;)
Við keyrðum svo á Hólmavík og gistum þar um nóttina,svo daginn eftir skoðuðum við pleisið,Hólmavík er mikið fallegur staður :) Svo var lagt ían á Reykjanesið á ágætis vegi sem betur fer.Ég hef bara eitt orð yfir þennan hluta ferðarinnar og það er PÚFFFFFFF.

Ættarmótið var fínt,nema þetta verður okkar síðasta tjaldútllega,það er á hreinu,við fengum bæði upp í kok á að gista í tjaldi.8)

Svo kom að heimferðinni og aftur lenti ég í hremmingum :evil: því í stað ógeðslegrar vegar þá fékk ég rok og ógeðslega sviptivinda sem þeittu hjólinu mínu hingað og þangað á veginum svo 2svar sinnum var ég næstum komin út af og farin að tína bláber rétt fyrir utan vegakantinn hehe. En áfram komst ég upp helv..heiðina og að gatnamótunum á Þorskafjarðarheiði,þar biðu mín Sylvía syss,Siggi og Hinrik minn og við tókum Þorskafjarðarheiðina,svo stoppuðum við hjá skýlinu sem er þarna uppi á miðri heiði,og þá komu ma&pa og tóku minn farangur í bílinn og omg hvað það munaði miklu fyrir Honduna mína að losna við þetta dót,hún var ekki lengur hoppandi og skoppandi út um allan veg,heldur lá eins og klettur það sem eftir var ferðarinnar.Meira segja þegat við vorum að fara niður í 10% beygjurnar þá lá hún bara :) Svo núna eftir allar þessar hrakningar þá er ég búin að komast að því að Hondan mín á bara að vera á malbikinu :) Hún er smá löskuð greyið eftir þessa ferð :) Nema að ég fái mér bara ferðahjól hehe.

Jæja,nóg komið í bili af þessu bulli :) SSSSSSSseeeeeeeeeeeeeeeeeejjjjjjjjjjjjjjjjjjjaaaaaaa

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.07.2009 15:00:04 / irisg

Þriðjudagur

Ekki veit ég hvað er í gangi hjá mér þessa dagana 8| Það er sofið til hádegis,vakið fram eftir og setið við tölvuna bókstaflega allan helv... daginn. Hvort ég sé svona eftir mig eftir landsmótið,það er spurning eða er þetta kanski aldurinn hehe :)
Allavegana skal núna verða breyting á,núna á að vakna snemma,fara út að ganga og alles.En samt ekki fyrr en eftir nokkra daga því við Hjalli erum að fara á ættarmót og svo á að keyra þangað sem sólin skín :) Tel líklegast að við förum á hjólunum,því ekki tekur minn maður það til greina að fara á Goldwing (yaris) hehe.
Við ætlum s.s að leggja af stað í fyrramálið (þ.e.a.s. ef við vöknum á kristilegum tíma :) )
Og svo á bara að keyra áleiðis á Reykjanesið við Ísafjarðardjúp en þar á ættarmótið að vera.Svo sjáum við bara til eftir það,hvert við förum.

Við erum voðalega lítið búin að vera að hjóla nema um síðustu helgi,þá fórum við á Potate Run í Þykkvabænum. Það er nú alltaf jafn gaman að heimsækja hana Dagrúnu :) Hún er ansi flippuð stelpan sú :haha::haha:.

Jæja nenni ekki að blogga meira,SKRIFIÐ ENDILEGA Í GESTÓ :)    
Seeeeeeeeeejjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa

Es: Myndavélin er enþá biluð svo ég verð að bíða með að setja inn myndir,nema að ég steli þeim frá hinum og þessum :haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.07.2009 14:35:08 / irisg

Landsmótið já :)

Þetta landsmót var hreint út sagt frábært,þó svo að maður mætti ekki opna á sér munninn eða hreifa á sér rassinn án þess að einhverjir þyrftu að smjatta á því,ég skil ekki svona. Getur einhver bent mér á þann sem lét ekki eins og kjáni á þessu móti ???
En samt sem áður ég skemmti mér konunglega :) Ég held að við höfum bætt metið á þessu móti,síðasta tala sem ég heyrði var 540 manns,það er bara frábært.Líka vegna þess að þetta er mitt síðasta landsmót :)I Já,þið lásuð rétt.Ég er orðin þreytt á þessum tjaldútilegum,hef bara ekki skrokk í svona :$

Við ætluðum hringinn eftir mótið en hættum við vegna heilsuleisis,þá á ég ekki við þynnku heldur allt annað ;) En svo er það blessað ættarmótið sem við förum á núna um miðjan júlí,það er spurning að fara einhvað áður og enda svo á ættarmótinu eða fara einhvað eftir mótið !!!!!!!! Kemur í ljós.

Ég tók þvi miður engar myndir vegna þess að myndavélin mín tók upp á því að bila á landsmótinu,svo hann Neddi vinur minn ætlar að setja myndir á disk fyrir mig :)
En jæja,heilinn er ekki alveg að virka sem stendur svo ég ætla bara að fara að hætta að blogga í bili og fara að borða þessar gómsætu brauðsneiðar með káli,tómötum og gúrku sem minn maður var að smyrja handa mér slurrrrppppppp.
Sssssssssssssssssseeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeejjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.06.2009 13:15:07 / irisg

30.júní 2009

Ég held að ég eigi aldrey eftir að gleyma þessum degi því í dag verður hann Ómar dúllari og vinur allra sem hafa einhvað kynnst honum,borin til grafar aðeins 53 ára gamall 8| Ég mun ávallt muna eftir brosinu og hversu kátur og glaðvær hann var.

Jæja ætli sé ekki best að tala um einhvað annað þó svo að hugur manns sé hjá fjölskyldu Ómars þessa stundina.

Við erum s.s að fara á landsmót á morgunn :) Hjalla tókst að koma yammanum sínum á götuna og okkur er því ekkert til fyrirstöðu en að drífa okkur á stað,svo á að reyna að fara hringinn líka eftir landsmót með stoppum hér og þar :) Við byrjum á því að stoppa hjá Önnu Soffíu,Stebbu og Lúlla og kíkjum líka á Tösku Atla :) Svo eru tvö kaffiboð á Húsavík :) Annað hjá Esther sem er gömul skólasystir mín og hitt stoppið hjá henni Úllu minni sem er fyrrverandi mákona mín :)

Ég er ekki alveg í stuði til að blogga meira í bili,en mun setja ferðasöguna og einhverjar myndir hér þegar ég kem heim.
Lifið heil og farið varlega :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.06.2009 23:39:55 / irisg

Takk fyrir spörkin hehe :)

Jæja þá fer að styttast í að Hjalli komi Yammanum sínum á götuna. það er LOKSINS búið að fá alla varahlutina og hann er byrjaður að setja þá í hjólið.

Við fórum og náðum í Eld Huga til rvk s.l föstudag og hann var hjá okkur fram á sunnudag :) Það er ekkert smá hvað eitt lítið krlili tæplega 3ja ára gamallt getur talað skýrt og vel :) Já hann er vel gerður þessi drengur minn :)
Það var mikið gaman hjá okkur hér um helgina,skruppum á ættarmót á Hellu á laugardeginum þar sem systkini pabba og fjölskyldur voru að hittast,Þórunn Klara og Eldur Hugi skemmtu sér vel þarna enda margt hægt að gera á svona stóru svæði sem þetta mót var haldið á. Ég tók nú einhverjar myndir en vélin mín er einhvað að stríða mér svo myndirnar urðu ekki margar á ættarmótinu :) en ég set þær samt inn ásamt myndum frá 17.júní. En þá löppuðum við hjónaleysin ásamt Þ.K í rúma 3 tíma og síðan þá er Hjallinn minn búin að vera óstöðvandi í göngutúrunum :haha: sem er bara frábært mál.

Svo er heljarinnar skemmtun framundan s.s landsmót Snigla sem haldið verður í Húnaveri,það á eftir að vera mikið fjör þar :) Svo er ætlunin hjá okkur Hjalla að halda áfram hringinn.Byrjum fyrst á Akureyri,vonandi fáum við nú gistingu þar hjá henni Önnu minni :) og svo er það Húsavíkinn að heimsækja gamla vinkonu og fyrrverandi mákonu :) Svo keyrum við bara áfram eftir veðri og komum heim eftir því hvað buddan leyfir 8| því ekki verður ódýrt fyrir okkur að kaupa bensín á 2 stk hjól þegar bensín líterinn er búin að hækka svona mikið :^) Ég get orðið brjáluð þegar ég hugsa um það,og þá skil ég líka allt þetta fólk sem bara flýr Ísland.Svei mér þá,en mér langar stundum að gera það líka.

Núna er barnaafmæli og brúðkaup framundan : Hún litla frænka mín hún Selma Lind verður 5 ára núna á föstudaginn og svo er litla snótin mín hún Þurí Ósk að fara að gifta sig á laugardeginum,guð hvað tíminn líður fljótt 8| mér finnst svo stutt síðan hún var með mér á Skeiðflöt og sagði mamma ég vil fara í fjósið með Sæu ömmu að mjólka 8) en svona er þetta bara.

Nú er Sollan mín,Heimir og litlu krílinn mín flutt aftur út til Seattle ;) svo nú verð ég bara að fara að safna til að komast til þeirra :)

Ég fékk leiðinlega frétt um daginn um að ein af mínum hjólafélögum væri látinn :( Það er mikill missir af þessum manni sem var allra vinur.Hann var alltaf síbrosandi og kátur og var með ótrúlega smitandi hlátur. Blessuð sé minning þín kæri vinur,þín verður sárt saknað.

Jæja nenni ekki að blogga meira.SSSSSSSSeeeeeeeeeeeeeeeejjjjjjjjjjjjjjjjjjaaaaaaaaaaaa

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.06.2009 21:21:24 / irisg

Langar svo margt,nenni ekki neinu

Ekki veit ég hvað er í gangi með mig þessa dagana,ég nenni bara engu en ætla að gera svo mikið t.d fara í sund og synda eins og vitleysingur,út að labba eða út að hjóla en í stað þess hangi ég bara heima og geri ekki neitt eða fer í heimsóknir hér á Selfossi eða bakkan 8| Ég held að þetta sé bara pjúra leti því ekki er hægt að kvarta yfir veðrinu :!:
Veit einhver hvað er að ?????'' ;););) 8) Ég sem á þetta fína hjól út í skúr og hreyfi það ekki. Ég held bara að ég þurfi að fá gott spark í afturendan til að koma mér af stað að gera einhvað. Hver bíður sig fram :d:d:d hehehehehe.
Annars er búið að vera hálfgerð veikindi hér á bæ,kanski er það,það sem er búið að vera að hrjá mig. En á morgunn ætla ég að reyna að gera breytingu þar á og vakna snemma og fara í göngutúr og setjast svo á fallega fákinn minn og hjóla einhvað út í náttúruna :)
Og hana nú hehehehe.
Jæja nenni ekki að blogga meira,munið að kvitta
SSSSSSSSEEEEEEEEEJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 19
Könnun
Orðin spennt/ur fyrir sumrinu ?
Já,ekki spurning
1 atkvæði

svona lala
0 atkvæði

hvaða sumri ?
0 atkvæði

Neipp
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 1